Flokkur: hversdagsleikinn

26.05.2007 13:47

Skíði

Við mæðgur vorum að koma inn eftir að hafa rennt okkur á skíðum í tæpa tvo tíma.  Gjörsamlega dásamlegt.  Fátt fólk í fjallinu,- enda svoldið kalt, en þá er nú bara að klæða sig vel.  Stórfínt færi, amk ef miðað er við árstíma.  Spáð sól og blíðu næstu daga og þá verður nú svigað skal ég segja ykkur ;)
http://www.akureyri.is/daglegt-lif/utivist/hlidarfjall

17.04.2007 10:23

Horuð !!

Litla Sólin mín er óttalega horuð núna að eigin sögn.  Það nefnilega lekur stanslaust úr nefinu á henni, orðin rauð og sár undir nefi vegna mikils snýts og hellur eru fyrir eyrunum,- þær valda því sjálfsagt að horið vellur ekki þar út líka ;)
Hún er svvvvoooo lasin að annaðeins hefur ekki gerst,- finnst henni altsvo.  Samt er mjög lítill hiti, bara svona vella en ég hef aldrei séð dömuna mína aumari.  Þorir varla að sofna á kvöldin því hún heldur að hún geti kannski ekki andað um nóttina og yfir daginn gengur hún um með píslavottasvip og spyr á 10 mín. fresti hvort mamma hennar hafi nokkurtímann orðið svona veik ?
anginn minn..................

15.04.2007 22:44

SUNNUDAGUR

Styðsta skíðaferð sögunnar var í dag.  Sól, logn og blíða heima og við börnin drifum okkur í fjallið.  Þar var þvílíka rokið en við fórum samt í stólinn og upp. Stólinn sveiflaðist svo mikið að Kolfreyja hélt að skíðin fyku af sér.  Við renndum okkur eina ferð,- eða reyndar fukum eina ferð.  Börðumst við Kára til að komast í bílinn og heim í blíðuna............

09.04.2007 23:27

Málshættir

Mjór er mikils vísir...er málshátturinn sem ég fékk í mínu eggi,- og margur er knár, þótt hann sé smár var Boga málsháttur.  Hvað þetta segir um okkur er ég bara ekki viss....................

05.04.2007 13:40

Páskafrí

Yndislegt, dásamlegt, meiriháttar gott páskafrí framundan.  Bara tjill og gleði.  Bogi minn blessaður fór í aðgerð á hnjám í gær þar sem liðþófarnir hans voru komnir í druslur.  Hann höktir nú um hús á hækjum og verður þannig allt páskafríið,- eins gott að hægt sé að glápa á kassann ;)  Sváfum út í morgunn og ég hlakka ekkert smá til að sofa út næstu FJÓRA dag,- eins og alþjóð veit er ég B-manneskja að eðlisfari ( þó ég kjósi nú ekki xB) og veit fátt betra en að sofa framundir hádegi og göslast síðan langt fram eftir nóttu !!!  Jibbý, jei, fyrir næstu dögum...........

02.04.2007 16:41

Skíði, rigning og rok !!

Vann frameftir degi en skellti mér síðan á skíði um 14:30,- svona til að ná síðustu bununum þetta misserið.  Þegar ég kom í fjallið kom úrhellisrigning,- en ég lét það nú ekki á mig fá og skellti mér í fjarkann.  Dásemd að sitja ein í lyftunni,- vagga til og frá í rokinu og láta rigninguna lemja sig í andlitið !!  í alvöru,- ótrúlega gott og slakandi.  Þess virði að renna sér niður í fúlu færi bara til að komast í lyftuna aftur !! 

01.04.2007 23:18

Mývatn

Eyddi helginni á Mývatni með manni mínum og starfsfélögum hans.  Mikið grín og mikið gaman.  Börnin í góðu yfirlæti hjá ömmu og afa á Blönduósi og við hjónin tjilluðum okkur.  Fórum í góðan göngutúr og í slökun á eftir í Jarðböðin.  Veislumatur á laugardagskveldinu.  Þá er bara að spíta í lófana og vinna af kappi næstu 3 daga og þá er frúin komin í páskafrí ;)

26.03.2007 16:53

Löng helgi

en samt bara frá föstudegi til sunnudags eins og venjulega.  Fengum eins og fyrr segir slatta af krökkum í pizzu á föstudagskvöldið.  Laugardeginum eytt í að horfa á fótbolta og aftur fótbolta, Goðamót í gangi semsagt.  Tókst þó að skjótast í Bónus og versla inn í veislumatinn sem var eldaður á laugardagskveldinu en þá komu Óskar, Hrafnhildur, Dagur Már og Bjarki Þór í mat.  Maturinn ljúffengur ( sjá uppskrift að framan) og síðan kjaftað og kjaftað og það rauða rann vel ofaní okkur Hrafnhildi.  Enda fór Óskar snemma heim með drengina en við stöllur sátum frameftir.  Á sunnudeginum var aftur horft á fótbolta og síðan farið á verðlaunaafhendinguna þar sem Lúkas fékk brons  um hálsinn.  Seinna um daginn fóru ég, Kolfreyja og Lúkas og héldum uppi merkjum Leiknis þar sem meistaraflokkur keppti við Magna hér á Akureyri.  Vorum næstum eina stuðningsfólk Leiknis og við Kolfreyja þær einu sem létum í okkur heyra,- Lúkas dauðskammaðist sín fyrir okkur,- en halló, á ekki að hvetja á fótboltaleikjum ?  Held að stuðningur okkar hafi skipt sköpum í því að Leiknir vann 3-1.  Þegar ég svæfði Kolfreyju í gærkvöldi steinsofnaði ég sjálf og vaknaði vel úthvíld á nýjum degi.

22.03.2007 21:12

Já, já, ég veit...

... að þið hafið beðið óþreyjufull eftir hnyttnum gullmolum frá mér !!  Bara búið að vera brjálað að gera...starfsþróunarviðtöl á milljón, þannig að ég er á trúnó alla daga,- gasalega gaman og síðan árshátíðir í skólanum.  Já takk, 4 stk, árshátíðir.  Mér þykja þær alveg brilljant og skipulagið á þeim til fyrirmyndar,- enda heil hátíðanefnd sem stendur þar að baki. Í Lundarskóla er sá háttur hafður á að á hverri árshátíð sýna árgangar af öllum aldursstigum, þannig að það var væntanlega ekkert smápúl hjá nefndinni að koma þessu öllu heim og saman,- og síðan er líka skipulag með hvaða bekkir horfa á hverju sinni.  Mér finnst þetta þjappa nemendum saman og gera það að verkum að þeir líti á sig sem eina heild,- frá 6 til 16 !! rétt eins og í minni skólum þar sem er ein árshátíð með allri flórunni.

Stefni á Fáskarapizzu annað kvöld með drengjum úr 6.flokki frá Fásk og foreldrum þeirra,- og Tinna auðvitað ert þú velkomin í hópinn ;)
 

18.03.2007 18:55

Árshátíð

Var á stórgóðri árshátíð starfsfólks Lundarskóla í gærkveldi.  Maturinn prima góður,- nema eins og svotil alltaf í hlaðborðum...algjörlega metnaðarlaust salat,- mestmegin niðursneitt  jöklasalat!!  Skil þetta ekki alveg því það er hægt að gera svo geggt góð salöt,- án mikillar fyrirhafnar.   Dansiball á eftir en við hjónin fórum frekar snemma heim ( alveg satt, já, ótrúlegt en satt) þar sem stefnt var á skíðaferð í dag.  Hmmm,- í dag hefur geysað vetrarveður þannig að skíðin hafa fengið hvíld og við tjillað okkur í dásamlegri, algjörri leti.  Lífið er dásamlegt !!!!!

 þessi broskarl er fyrir Kolfreyju Sól

16.03.2007 21:48

Þessa dagana...

....sakna ég svooooo fjallanna minna fyrir austan,- svala þránni með því að skoða myndir,- en það æsir bara upp þrána !!  Þarf að fara að plana austurferð !! Næstu helgi hitti ég nú vonandi nokkra Fáskara því þá er Goðamót hjá 6.flokki,- bara ef þeir gætu tekið fjöllin í poka !!

13.03.2007 23:02

Heima,- aftur

Kolfreyja Sól var enn með hita í gær og þá var Bogi heima og í dag var hún heima en hitalaus með mömmu sinni.  Þannig að hún fer nú í skólann á morgun....7,9,13....Kolfreyja Sól var nefnilega hitalaus á sunnudaginn og við vorum viss um að hún yrði skólafær í gær en það var nú aldeilis ekki þannig.  Kannski hún verði með hita annanhvern dag e-hvað áfram ;)  Ég lúrði nú bara með dömunni og spilaði síðan Þjóf alveg eins og vitleysingur og las svo svoldið,- það var nefnilega að koma ný bók eftir Lisu mína Marklund ;)

Haffi minn,- kakan er farin í póst ;)  vonandi étur ekki pósturinn á Spáni hana,- en þú veist þá það ef þú færð engan pakkann !!

09.03.2007 17:55

Dularfulla bókin

  • Einar Áskell kom hingað í pósti í vikunni. Stílaður á Kolfreyju Sól.  Hún svo gasalega glöð með þessa fínu bók um Einar Áskel og stríðspabbann,- en við höfum ekki glóru um hver sendandinn er,- bara að hann er frá Fáskrúðsfirði, amk er póststimpilinn þaðan.  Okkur leiddist nú ekki að vita hver sendandinn er ;)  en hver sem hann er,- takk fyrir, segir Kolfreyja Sól.
  • 09.03.2007 08:05

    góðir gestir....

    Þau komu hér í gær þessir fínu gestir.  Ólína og Albert.  Ekki að þau séu par, enda væri það sérkennilegt, heldur komu þau í sitthvoru lagi en á nokkurveginn sama tíma.  Hann í mat og síðan í flug og hún í mat og gistingu þar sem hún er í framhaldsnámi við HA.  Það var náttúrulega kjaftað, hlegið og etið hver sem betur gat.  Albert fór síðan í flugið og við Ólína sátum svolítið frameftir og spjölluðum,- og um hvað annað en skólamál ;)
    Ég er heima í dag því snúllan mín er komin með flensuna.  Hún var með 40 stiga hita í gær og þá var Bogi heima og gott er ef hún er ekki enn með sama hitann núna og hóstar og hóstar.  Angaskinnið litla.

    07.03.2007 18:05

    Lúxus

    að búa á Akureyri,- verð nú bara að segja það. Í dag var ég búin á fundi um kl 15:30,- þar sem það var sól og blíða þá fór ég heim,- skutlaði Lúkasi mínum og skíðunum okkar inn í bíl og við í fjallið.  Renndum okkur í góðu veðri og góðu yfirlæti í rúman klt. en þá þurftum við heim því Lúkas átti tíma í gítar kl. 17:30. Aldeilis munur að vera "næstum" í göngufæri við skíðasvæðið  
    Flettingar í dag: 23
    Gestir í dag: 7
    Flettingar í gær: 32
    Gestir í gær: 6
    Samtals flettingar: 151512
    Samtals gestir: 47799
    Tölur uppfærðar: 16.5.2012 18:49:04