Færslur: 2007 Maí

26.05.2007 13:47

Skíði

Við mæðgur vorum að koma inn eftir að hafa rennt okkur á skíðum í tæpa tvo tíma.  Gjörsamlega dásamlegt.  Fátt fólk í fjallinu,- enda svoldið kalt, en þá er nú bara að klæða sig vel.  Stórfínt færi, amk ef miðað er við árstíma.  Spáð sól og blíðu næstu daga og þá verður nú svigað skal ég segja ykkur ;)
http://www.akureyri.is/daglegt-lif/utivist/hlidarfjall

25.05.2007 20:15

Sumar

Á leiðinni í vinnuna í morgun,- eftir 13 tíma Þyrnirósarsvefn ( ekkert grín hér í gangi), glumdi í útvarpinu " Sumarið er komið,- sumarblómin á spottprís,- Sumarið er komið, ferð til Parísar á xxx krónur."  Meðan þessi sumarsöngur hvein í eyrum mér höfðu rúðuþurrkurnar mínar vart undan,- að skófla burtu snjókornunum. Hmmm,- hvað er þá til ráða?  Já, bara að gleða sig og stefna á skíðahelgi,- jibbý !!  Hlíðarfjall,- hér komum við.............

22.05.2007 22:31

Sól

  Sólarstjórnin fædd !!  og nú verður allt gott og gaman !!  EKKI SATT ?

21.05.2007 21:26

Framsókn

er nú í algjörri vörn,- e-lega bara búin að pakka saman og farin sár og snúin út af vellinum !!  og leikurinn varla byrjaður,- að nýju altsvo..............
Legg til að eftirlegukindurnar ( passar svo vel að segja kindur um Framsókn,- og alls ekki illa meint) finni hugsjónum sínum nýja farvegi,- leggi inn hjá öðrum flokkum,- ja eða bara fari heim og moki.......( og ekki orð um það meir !!)

19.05.2007 11:43

Chili Kjúlli !!

eftir brjálað og einstakt djamm á kosninganótt tók við suðurferð að skoða bráðskemmtilega skóla í góðum félagsskap.  Sérstaklega fannst mér gaman að sjá það þróunarstarf sem er í gangi í hinum gamalgróna Grandaskóla,- tek ofan fyrir Stínu Gísla og félögum ;)  Síðan var nóg að gera í vinnunni,- reyndar töluvert meira en venjulega, sumar vikur eru þannig,- virkilega gaman að takast á við krefjandi verkefni. 
Á uppstigningardag réðst ég ekki á garðinn þar sem hann er lægstur ( hehe) heldur fór út með klippur og saxaði niður heilu runnalengjurnar.  Það var nefnilega þannig að til þess að geta hengt á þvottasnúruna flæktist ég í rifsberjarunnum og flugurnar gerðu gys að mér og nokkrar atlögur !!  Get svo svarið það að ég er með harðsperrur í framhandleggjunum eftir þolraunina með klippurnar ;)
Í gærkvöldi kom Ásta Eggerts í mat til okkar og þar sem ég þarf nú sífellt að vera að prófa e-hvað nýtt þá eldaði ég kjúlla eftir uppskrift úr nýjasta Gestgjafanum,- nánar tiltekið á bls. 34.  Þetta var nú mikið dúll og snúll,- saxa hitt og þetta en sem betur fer á ég töfrasprota og gat á svipstundu tætt niður chili, engifer, kóríander og ég veit ekki hvað.  Mér leist síðan ekkert sérstaklega vel á blikuna þegar ég smakkaði á salatsósunni ( uppistaða sojasósa) og fannst hún ekkert spes,  og chilisultan sem ég var búin að sjóða í klt. var líka ansi sterk,- sveið e-lega niður í r.....  en á borðið fór þetta alltsaman og volla,- þegar biturt bragðið af salatsósunni blandaðist við hið sætsterka bragð að chilisultu gerðist e-hvað undur.  Gjörsamlega bráðnaði upp í okkur öllum,- kjúllinn og mangósalatið toppaði síðan blönduna.  Mæli semsagt eindregið með þessum rétt fyrir ykkur sem eruð orðin pínuleið á barbakjúlambakjöti á grillinu ;)

17.05.2007 19:04

Menntamálaráðuneytið....

til Samfylkingar takk fyrir,- heilbrigðisráðuneytið líka ásamt félagsmálaráðuneyti og utanríkisráðuneyti,- reyndar held ég að Sjálfstæðisflokkurinn yfirtaki heilbrigðismálaráðuneytið til að einkavæða heilsugæslu landsins en Samfylking fái atvinnuvegaráðuneyti !!

17.05.2007 10:58

Konan

með Blaðinu í dag er þetta fína fylgirit sem heitir Konan.  Ég hugsaði mér gott til glóðarinnar að lesa þetta rit,- fræðast um innsta eðli konunnar, kvenréttindamál, ástæður launamunar kynja o.s.frv.   Þegar ég spennt og rjóð fletti upp ( með hálfgerðri lotningu) þessu riti þá sá ég fyrst lítið annað er auglýsingar,- auglýsingar um snyrtivörur, föt, yoga og kaffi. Og ein flenniauglýsing á heilsíðu af virkilega loðnum framhandlegg karlmanna ( að ég held) með gasalega flott úr !!  Já, tíminn skiptir máli ;) Þegar ég var búin að sortera frá auglýsingarnar ( 18 stk á 8 bls. þar af ein heilsíðuauglýsing) og gat rýnt í greinarnar þá voru þær um....sólarkrem, sólarvörn á augu, sólgleraugu, tískuna 2008 ( eiginlega ekki grein, heldur mynd), smart vörur í snyrtibudduna, síða kjóla, snyrtimeðferðir ( gervineglur á tær og brazilískt vax), hresst yfirbragð með ákveðnu ilmvatni, auðvelda augnhreinsun, náttúrulega föðrun og ferskt útlit, að vera ljós og sumarlegur með ákveðnu vörumerki, áherslu á augabrúnir, létt og náttúrlegt, ertu haldin kaupæði sjálfspróf, nefúði og sumarilmur og að lokum að konur sæki í mannauðsstjórnun í HÍ ( það var nú eina greinin sem mér fannst áhugaverð !!).  Þegar ég var búin að skoða allar þessar greinar var nokkuð augljóst að 13 ( já takk fyrir ÞRETTÁN ) þeirra voru í raun auglýsingar,- greinar um nafngreindar snyrtistofur, ákveðin merki í ilmvötnum, nefúða, snyrtivörum, sólarvörn og sólgleraugu.  Þegar upp var staðið voru tæplega 2 blaðsíður af þessum 8 ekki auglýsingar eða dulbúnar auglýsingar.  Ja,hérna hér !! 
Þegar fornleifafræðingar framtíðarinnar finna þennan áttblöðung þá væri nú gaman að heyra hvaða skilgreiningu þeir setja á orðið konur !!!

16.05.2007 18:26

Úff

Ætli ég upplifi það nokkurntímann á mínum fullorðinsárum að vinstri stjórn sitji við völd í landinu mínu !!  Er bara ekki enn að fatta þessi kosningaúrslit.  En þetta er greinilega það sem fólk vill og að ég vorkenni því ÞEGAR það fer að barma sér yfir biðlistum, lágum launum, lélegum vegum...................

13.05.2007 13:45

Fúl, svekkt og pirruð

Agalegt svekkelsi !!  Eins og það var nú gaman framanaf kosningavökunni,- stjórnin fallin og allt,- þá var restin ömurlega fúl.  Einnar manneskju meirihluti þessarar ríkisstjórnar.  Er bara fúl, svekkt og pirruð !!  Sei la ví...........

12.05.2007 12:33

Svolítið seint...

...að koma með kosningaáróður,- EN mikið óska ég þess að við fáum nýja ríkisstjórn. 
Ríkisstjórn sem hugsar um fólkið í landinu og þá ekki síst börnin og (h)eldri borgara.  Ríkisstjórn sem skóflar upp biðlistunum á Bugl og fjölgar búsetuúrræðum gamla fólksins. 
Ríkisstjórn sem eykur framlag til sveitarstjórna svo þær geti gert betur við skólana og börnin þar.  Það er óþolandi að það sé ekki fjármagn til að þjónusta börnin okkar eins vel og unnt er. 
Ríkisstjórn sem afnemur hina fáránlegu bókakvóta hjá Námsgagnastofnun og gerir skólum kleift að kaupa öll þau námsgögn sem hvert og eitt barn þarf til að ná sínum þroska og blómstar á sínum forsendum.  Námsgögn eru nefnilega svo miklu meira en bækur, að ég tali nú ekki um að það þurfi fjölbreyttar bækur en ekki eingöngu eina tegund af t.d. stærðfræðibókum.  Rétt eins og við notum ekki öll sömu stærð af skóm þá hentar okkur ekki heldur sama námstækni. 
Ríkisstjórn sem gerir eldra fólki kleift að búa saman,- að það sé ekki þannig að þegar makinn veikist þá fari hinn á vergang.  Já, hreinlega á vergang eins og pabbi minn var á síðustu mánuði ævi sinnar árið 2000,- og enn hefur það ekki breyst. 
Ríkisstjórn sem gerir "venjulegu" fólki kleift að vinna normal vinnudag,- svo það geti sinnt börnum sínum eins og þarf.  Að ungt fólk þurfi ekki að vinna myrkranna á milli og meira en það til að koma sér húsnæði yfir höfuðið og fæða og klæða börnin sín. 
Ríkisstjórn sem eykur jöfnuð meðal fólks í landinu okkar en gerir ekki hina ríku sífellt ríkari og fjölgar í fátækra hópnum, er það eðlilegt að fólk sem á pening borgar 10 % skatt með því að láta peningana vinna fyrir sig en við hin borgum mun hærri skatt af því að við vinnum með höndum og höfði ?  Sumt fólk er að fá stórar summur á bankabókina sína sem arðgreiðslur og ég veit ekki hvað.  Um áramótin voru lagðar 44 millur á reikning manns míns,- fyrir mistök,- frá Fjárfestingafélaginu Gretti.  Þeir voru nú ekkert voðalega snöggir að kippa þeim út aftur ( og mikið hrikalega sé ég eftir að við eyddum þeim ekki bara) og báðu okkur varla afsökunar,- að við fengum blómvönd fyrir viðvikið að leyfa þeim að nota bankareikninginn okkar í meira en hálfan mánuð !!  En þessi upphæð átti semsagt að fara á e-hvern annan einstakling,- sem saknaði þeirra greinilega ekkert svakalega þar sem þessi tími leið þar til mistökin voru uppgvötuð.  Er ekki svakalegt að e-hver eigi svo mikla peninga  ( líklega) að hann taki seint eftir því að 44MILLJÓNIR króna vantaði á reikninginn hans ?

Í dag er dagurinn til að breyta þessu !!! Nýja ríkisstjórn takk fyrir.

10.05.2007 16:17

Kristjánssynirnir

Einar Oddur og Guðjón Arnar sýndu karlrembuhugsun sína þegar þeir sendu "bændum" á Norðvesturlandi bréf.  Stíluðu bréfið eingöngu á karlmennina á heimilinum og steingleymdu því að helmingur bænda eru konur.  Nú er árið 2007 og því miður er þessi hugsunarháttur ótrúlega mikið við lýði ennþá,- þ.e. þessi kynbundni hugsunarháttur.  Bændur eru karlar!!  Konur þvo þvott,- amk ef marka má hina annars yndislegu sjóara sem ég fór með á sjóinn ásamt 6.bekkingum í dag.  Þegar börnin voru orðin grútskítug í orðsins fyllstu merkingu þá sögðu þeir ( sjóararnir ) hver um annan þveran,- mamma þín verður nú ekki ánægð að þú komir svona skítug/ur heim og hún þarf nú aldeilis að þvo!!  Konur elda líka- því sjóararnir sögðu líka,- mikið verður mamma því glöð að fá fisk í pottinn !! 
Fór sem sagt á sjóinn í dag á Húna II,- frábær ferð og frábærir krakkar og ekki síst frábærir karlar sem voru um borð,- fyrir utan kynbundna talið !!!

09.05.2007 12:11

Finndu hlið !!

http://dagskra.ruv.is/streaming/ras1/?file=4304509/4

Mæli eindregið með því að þið gefið ykkur tíma til að hlusta á þetta stórgóða viðtal við Sif Vígþórsdóttir, eins og talað úr mínu hjarta ;)

08.05.2007 22:30

Svekkt....

Beið nú aldeilis spennt eftir borgarafundinum á Egilsstöðum, þar sem ég hélt að Jónína Bjartmars og Helgi Seljan mættust.  En sorrý Helga,- Jónína var búin að vippa sér úr settinu þegar Helgi fékk spyrlahlutverkið´.....

07.05.2007 21:17

Loksins, loksins

komumst við fjölskyldan austur á firði.  Það er búið að vera á planinu hreinlega í allan vetur að fara austur en alltaf e-hvað komið í veg fyrir það.  Renndum af stað um hádegi á laugardag,- og þetta er enga stund farið !! 

Kolfreyja hvarf þegar við komum austur og ég sá hana í algjörri mýflugumynd allan tímann,- og þá varð ég að droppa við hjá Líneik og Magga sem eignuðustu semsagt fjórbura um helgina.  Til útskýringar þá eiga þau tvíburana Ásgeir Pál og Jón Braga og þeir ásamt Mist Björgvinsdóttur og Kolfreyju mynda "hin fjögur fræknu" sem eru óaðskiljanaleg, amk þegar þau hittast.  Þær stöllur gistu hjá þeim piltum þessar tvær nætur og þau fóru saman í Sing star og í skólann og út í læk og upp að Stóra stein og..og..og....
Ég fékk nú alveg sting í hjartað þegar dóttir mín spurði mig þegar við héldum heim á Akureyri...af hverju fluttum við, mamma?

Lúkas hitti sína vini og fór líka í skólann í dag,- og ég auðvitað.  Nýji leikskólinn gasalega flottur og allir í GF auðvitað flottir. 

Við vorum í matarklúbb á laugardagskvöldið og þar var rætt um ýmis þjóðþrifamál,- pólitík, dóp,dauðarefsingu og líf eftir dauðann...............sei nó more....

Og auðvitað hittum við fullt af góðum vinum, kaffi hér og kaffi þar,- TAKK FYRIR OKKUR

05.05.2007 11:45

Hroki

Mér finnst ógurlegur hroki í þessum leiðinda Framsóknarauglýsingum !!  Jón talar og talar og á að virka voða landsföðurslegur en virkar á mig hrokafullur og leiðinlegur !!  "Þegar ég var ungur þá tók ég nú þátt í mótmælum, Keflavíkurgöngu og allt,- það var áður en ég náði fullum þroska !!"  ojbarasta,- segi ég nú bara..........
Flettingar í dag: 23
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 32
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 151512
Samtals gestir: 47799
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 18:49:04